Tíðni kynlífsathafna fer hækkandi hjá unglingum vegna áfengisneyslu. Þeir unglingar sem eiga stranga foreldra eru líklegri til þess að byrja fyrr að stunda kynlíf og þeir sem eiga afskiptalausa foreldra eru þar á eftir. Áfengisneysla er stór partur þess að unglingar sýni slæma kynhegðun, þau eru líklegri til þess að stunda óábyrgt kynlíf undir áhrifum áfengis. Við þekkjum það mörg að þegar maður er undir áhrifum áfengis þá er maður líklegri til þess að taka áhættur og gera hluti sem maður myndi vanalega ekki gera þegar maður er ódrukkinn. Lesa meira “Áhrif áfengisneyslu á kynhegðun unglinga”
Author: eyglo
Lýðræði og tómstundastarf
Í stuttu máli má segja að lýðræði og lýðræðisleg þátttaka sé hlekkur í að við sjáum eigin hagsmuni falla saman við almannahag. Þátttaka í tómstundastarfi er því ákveðin samfella þess að hafa val og hafa áhrif á framvindu starfs sjálfum sér og öðrum til menntunar og ánægju. Lýðræði í tómstundastarfi og lýðræðisleg þátttaka í starfinu er því mikilvæg því hún er trygging þess að við og aðrir séum gerendur í starfinu en ekki viljalaus verkfæri sem fljótum bara með. Lesa meira “Lýðræði og tómstundastarf”
Er síminn að ræna ungmenni svefni?
Fyrir nokkrum vikum síðan fór ég ásamt 15-16 ára stúlkum í æfingarferð norður til Akureyrar. Ferðin gekk vel á allan hátt og var skemmtileg. Það sem vakti þó athygli mína var að þegar stúlkunum var sagt að nú væri komið að háttatíma að þá snéru sér nokkrar á hliðina og fóru í símann sinn. Ég ákvað að bíða í smá stund og sjá svo til hvort þær myndu leggja hann frá sér stuttu síðar. Svo var ekki. Þess í stað þurfti ég að biðja þær að hætta einnig í símanum. Ein stúlkan brá því á það ráð að fara með símann undir sængina og hélt því að hún gæti haldið áfram iðju sinni þar. Hún vissi ekki að sængin öll ljómaði því hún var með skjábirtu stigið á hæstu stillingu. Lesa meira “Er síminn að ræna ungmenni svefni?”
Vil ég vera fyrirmynd?
Ef einhver hefði spurt mig sjálfa fyrir 10 árum hvort að ég héldi að ég gæti orðið fyrirmynd fyrir aðra hefði svarið verið nei. Ég var þessi stelpa sem var mjög feimin en aftur á mót mjög virk. Ég var hluti af vinahóp sem voru svona ,,the cool kids” ef við slettum aðeins en ég var svo aftarlega í fæðukeðjunni hjá þeim að ég hékk inn í hópunum því að besta vinkona mín þá var í hópnum. Mig langaði alltaf að vera vinsæl og vera með í öllu en það var ekkert þannig, ég var með en var samt svo ósýnileg. Lesa meira “Vil ég vera fyrirmynd?”
Tómstundir háðar fjárhag
Margir krakkar vilja stunda tómstundir og flest allir foreldrar vilja að börnin sín stundi tómstundir af einhverju tagi. En því miður eru dæmi um það í þjóðfélaginu í dag að það er ekki möguleiki fyrir barn að stunda einhverja tómstund eða þurfa aðvelja sér bara eina tómstund til þess að iðka. Fjölskyldur sem eru stórar eða með nokkur börn hafa margar hverjar ekki efni á að senda öll börnin sín í tómstundir eða geta bara leyft þeim að velja eina tómstund til þess að iðka. En afhverju ? Svarið er að þær eru svo dýrar. Lesa meira “Tómstundir háðar fjárhag”
Taka unglingar kynjajafnrétti alvarlega?
Í námi mínu við tómstunda – og félagsmálafræði við Háskóla Íslands las ég nýlega grein sem fjallar um kynjajafnrétti. Og heitir hún „Er áhugi á kynjajafnrétti sprottinn af áhyggjum af slakri stöðu drengja?“ Þessi grein vekur mann svolítið til umhugsunar og titillinn er frekar grípandi því maður tekur meira og meira eftir því í samfélaginu að drengir eru svolítið útundan í „kynjajafnréttis“ fræðslunni sem nú á sér stað. Lesa meira “Taka unglingar kynjajafnrétti alvarlega?”