Ef einhver hefði spurt mig sjálfa fyrir 10 árum hvort að ég héldi að ég gæti orðið fyrirmynd fyrir aðra hefði svarið verið nei. Ég var þessi stelpa sem var mjög feimin en aftur á mót mjög virk. Ég var hluti af vinahóp sem voru svona ,,the cool kids” ef við slettum aðeins en ég var svo aftarlega í fæðukeðjunni hjá þeim að ég hékk inn í hópunum því að besta vinkona mín þá var í hópnum. Mig langaði alltaf að vera vinsæl og vera með í öllu en það var ekkert þannig, ég var með en var samt svo ósýnileg. Lesa meira “Vil ég vera fyrirmynd?”
Tag: fyrirmynd
Félagsmiðstöðvastarfsfólk sem fyrirmyndir
Unglingsárin er sá tími þar sem einstaklingur tekst á við að móta sjálfsmynd sína. Fyrirmyndir eru stór hluti af því að móta einstakling. Starfsfólk félagsmiðstöðva eru oft miklar fyrirmyndir og þurfum við því að einblína á það að gera okkar allra besta sem slíkar. Unglingsárin er sá tími þar sem einstaklingar læra samskipti, læra að bera virðingu fyrir öðrum ásamt því að hlusta á skoðanir sínar og annarra. Unglingsárin eru viðkvæmur tími á þroskaferlinu þar sem breytingar verða útlitislega og andlega. Ungmennin geta verið viðkvæm þar sem mikil hormónastarfsemi er í gangi og miklar tilfinningar. Lesa meira “Félagsmiðstöðvastarfsfólk sem fyrirmyndir”
„Burtu með fordóma … þetta er engin algebra, öll erum við eins.“
Kveikjan að umfjöllunarefni þessarar hugleiðingar, fordómum, er rannsókn sem ég rakst á ekki fyrir löngu. Rannsóknin var frá árinu 2013 og sneri að viðhorfum ungmenna til mannréttinda innflytjenda og móttöku flóttafólks. Mér þótti efnið mjög áhugavert í ljósi þeirrar umræðu sem hefur verið í samfélaginu að undanföru og þeim stóra hópi flóttafólks sem nú er í Evrópu. Um var að ræða viðtalsrannsókn þar sem talað var við 19 ungmenni og voru fimm þeirra sem gerðu skýran greinarmun á „okkur“ og „hinum“. Þetta þótti mér vera „fimm“ of mikið og sýna að eitthvað þarf að breytast. Lesa meira “„Burtu með fordóma … þetta er engin algebra, öll erum við eins.“”