Tengsl á milli foreldra og barns virðast skipta miklu máli fyrir framtíð hvers og eins og hvernig við mótumst sem fullorðnir einstaklingar, til dæmis hvernig við hegðum okkur og hvaða gildi við höfum. Í barnæsku er mikilvægt að mynduð séu sterk tengsl á milli foreldra og barns svo að barnið muni þróa með sér góða sjálfsmynd. Ef slík tengsl eru ekki mynduð vegna skorts á getu til að sýna umhyggju er meiri hætta á að seinna meir muni barnið leiðast út í óæskilega hegðun. Foreldrar eða forráðamenn sem hafa ekki tök né yfirsýn á hvaða skyldur þau hafa ná oft á tíðum ekki að sinna skyldum sínum þegar kemur að uppeldi barna sinna. Lesa meira ” Grunur um ofbeldi og vanrækslu – Hvað er næsta skref?”
Tag: barnavernd
Eftirfylgni fósturbarna á Íslandi mikilvæg?
Það fer ekkert á milli mála að fósturbörnum fer fjölgandi hér á landi sem er frábær þróun að vissu leiti þar sem að það eru ansi mörg börn og unglingar sem að þurfa á því að halda. En vandamálið sem hefur fylgt því er viðhorf annarra barna til þeirra sem eru í fóstri og eftirfylgni þeirra frá barnarvernd er heldur lítil. Það hefur lengi verið litið á fósturheimili sem einskonar athvarf fyrir vandræða unglinga en algengasta orsök þess að börn eru send á fósturheimili er vegna erfiðra aðstæðna á heimili þeirra. Það er alls ekki óalgengt að sú sé staðan en oftast liggur vandamálið á heimili þeirra. Lesa meira “Eftirfylgni fósturbarna á Íslandi mikilvæg?”