Þegar unglingar fara út af brautinni og leiðast út í áhættuhegðun eins og vímuefnaneyslu, ofbeldi eða aðra skaðlega hegðun, er sjaldnast um tilviljun að ræða. Samfélagið sér oft aðeins afleiðingarnar, en gleymir að spyrja: Hvað liggur að baki? Unglingar sem lenda í vandræðum eru ekki einfaldlega ,,vandræðagemsar” heldur einstaklingar sem oft hafa upplifað erfiðar aðstæður, tilfinningalegan sársauka eða skort á stuðningi og leiðsögn.
Af hverju leiðast unglingar út af sporinu?
Enginn fæðist með þá ósk að enda í erfiðum aðstæðum. Margir unglingar sem eiga í erfiðleikum hafa upplifað áföll, vanrækslu eða vantar stuðning á heimili. Sumir glíma við kvíða, þunglyndi eða aðra geðræna erfiðleika sem þeir kunna einfaldlega ekki að vinna úr. Áhættuhegðun verður því oft að leið til þess að flýja vanlíðan, fyrir aðra er það leit að spennu eða viðurkenningu í hópi jafnaldra, þau vilja lang flest tilheyra, vera hluti af einhverju stærra jafnvel þótt það leiði þau á hættulegar brautir.
Áhrif jafningjahópsins eru mikil á unglingsárunum. Félagslegur þrýstingur eða löngun til að passa inn getur orðið til þess að unglingar prófa vímuefni eða taka þátt í annarri óæskilegri hegðun. Á þessum aldri er heilinn enn að þroskast og ákvarðanataka er ekki alltaf skynsöm eða hugsuð til lengri tíma. Það gerir unglinga sérstaklega viðkvæma fyrir áhrifum umhverfisins.
Mikilvægi uppbyggilegs frítíma
Frítími getur skipt sköpum í að byggja upp forvarnir gegn áhættuhegðun. Þegar unglingar finna sér uppbyggileg áhugamál eins og íþróttir, listir, tónlist eða sjálfboðastarf, eykst sjálfstraust þeirra og þau finna tilgang. En þeir sem missa tengsl við jákvæða afþreyingu eru líklegri til þess að leiðast út í skaðlega hegðun. Skortur á stuðningi og tilgangi gerir það að verkum að þeir leita í annað. Skipulögð tómstundastarfsemi getur því verið mikilvægur þáttur í forvörnum. Þeir sem hafa eitthvað fyrir stafni eða eiga stað sem þeim líður vel á eru ólíklegri til þess að þróa með sér neikvæð mynstur. Íþróttafélög, félagsmiðstöðvar og önnur félög geta verið dýrmæt úrræði fyrir unglinga sem skortir jákvætt og hlýtt umhverfi. Það er því ekki nóg að segja ungmennum að halda sig frá vímuefnum eða áhættuhegðun við þurfum líka að veita þeim valkosti sem eru raunverulega aðlaðandi.
Hægt að snúa blaðinu við
Að fara út af sporinu þýðir ekki að framtíðin sé glötuð. Margir unglingar sem hafa farið út af sporinu ná að snúa lífi sínu við með réttri aðstoð og hvatningu og að trúa á þau og veita þeim annað tækifæri er lykilatriði. Spurningin er því ekki aðeins hvernig við getum komið í veg fyrir að unglingar fari út af brautinni, heldur einnig hvernig við getum hjálpað þeim sem þegar hafa villst af leið. Hafa öll stuðning og úrræði til þess að snúa við blaðinu? Því miður ekki. En við getum lagt okkar af mörkum með því að vera til staðar, veita tækifæri og búa til umhverfi þar sem þau finna öryggi og leið til að byggja sig upp að nýju. Allir eiga skilið annan séns en hann þarf að vera raunverulegur, með skilningi, stuðningi og trú á að breyting sé möguleg.
—
María Helena Mazul, nemandi í tómstunda- og félagsmálafræði