Unglingsárin hafa lengi verið þekkt sem erfiðasta tímabil einstaklings. Unglingurinn finnur að hann er að verða sjálfstæður einstaklingur, vill finna sjálfan sig og prófa sig áfram í lífinu. Á þessum tímamótum, þar sem hann er hvorki barn né fullorðinn, þá stendur hann oft á krossgötum. Með tilkomu sterkra eigin skoðana á þessum aldri þá vill unglingurinn oft ekki lúta öllu því sem fullorðna fólkið segir en á sama tíma veit unglingurinn oft ekki í hvorn fótinn er best að stíga. Sjálfstæðið rís í unglingnum og hann hafnar þá oft leiðsögn, þó hann þarfnist hennar. Svo það er skiljanlegt að unglingsárin séu talið erfiðasta tímabil hvers einstaklings. Lesa meira “2017 árgerðin af unglingi”