Málefni sem hefur verið mér ofarlega í huga undanfarið er sjálfsmynd unglinga og þau áhrif sem samskiptamiðlar og aukin notkun á þeim hefur á hana. Sjálfsmyndakrísa er vissulega ekki nýtilkominn vandi á unglingsárunum en samskiptamiðlarnir eru tiltölulega nýlegir og í dag er það stór undantekning ef unglingur notast ekki við slíka miðla. Með samskiptamiðlum er átt við forrit á borð við Facebook, Instagram og Snapchat, en þetta eru nokkrir best þekktu samskiptamiðlarnir úr þeim hafsjó sem í boði er. Lesa meira “Áhrif samskiptamiðla á sjálfsmynd unglinga”
Tag: samskiptamiðlar
Að vera unglingur á gervihnattaöld
Upp úr þrítugsaldrinum eru mörg okkar farin að gleyma því að eitt sinn vorum við unglingar. Við höfum gleymt því að þegar við vorum á þeim aldri fannst okkur allir þeir sem væru þrítugir, eða eldri, væru orðnir óttalega gamlir og ekki langt í dvölina á elliheimilinu. Þetta hefur verið svona og verður væntanlega alltaf svona. Hver kannast ekki við það? Nýjasta dæmið um áhyggjur okkar fullorðna fólksins af unga fólkinu er notkun þeirra á snjalltækjum. Til að mynda er mikið rætt um mikla notkun snjallsíma og að frítími unga fólksins fari allur í að skoða samfélagsmiðla á vefnum. Við teljum að unga fólkið sé hætt að tala saman, nema þá í gegnum netið. Á sama tíma heyrast háværar raddir í samfélaginu um að allir skólar ættu nú að spjaldtölvuvæðast. Erum það við fullorðna fólkið eða eru það unglingarnir sem krefjast þess? Lesa meira “Að vera unglingur á gervihnattaöld”