Hvað er Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna? Barnasáttmálinn var samþykktur á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna árið 1989. Ástæða þess að hann var búinn til var vegna slæmra aðstæðna barna eftir stríð og þörfinni á að vernda þau. Við gerð Barnasáttmálans tók hann alls kyns breytingum. Áður en hann var undirritaður í þeirri mynd sem við þekkjum í dag var til að mynda bætt við greinum um þátttöku barna, það er að segja að börn eigi að hafa áhrif á eigið líf og það sé hlutverk fullorðinna að hlusta á börn. Þemu Barnasáttmálans eru vernd, umönnun og þátttaka. Lesa meira “Þegar börn læra um réttindi sín – og við lærum með þeim”